Friday, May 23, 2008

Íslömsk myndlist í arabaheiminum

Fyrsta ritgerðin úr námskeiðinu Íslam í fortíð, nútíð og framtíð hefur verið birt á vefnum. Þetta er ritgerð Þórdísar Ástu Thorlacius og er tengill í hana hér fyrir neðan.

Hér er varpað ljósi á þá hefð sem skapast hefur í myndlist og listsköpun hjá múslimum og reynt að útskýra af hverju þetta er svona viðkvæmt mál hjá múslimum. Sérstaklega er fjallað um sýningu í Listasafni Akureyrar 27. júní –8. október árið 2002, sem sýndi á mjög skemmtilegan hátt hvernig hvert og eitt land og ríki getur og hefur skapað sína eigin þjóðlegu, jafnt sem nútímanlegu list.

No comments: