Sunday, May 25, 2008

Íslam og múslimar á Vesturlöndum

Kristján Þór Sigurðsson skrifar um íslam og múslima á Vesturlöndum og kynni/samskipti þátta sem oft er stillt upp sem andstæðum, þ.á.m. veraldarhyggju gegn trú, þjóðríki gegn fjölmenningu, austri gegn vestri, o.s.frv. Fjallað er um múslima á Vesturlöndum sem minnihluta og hvernig það skapar ákveðin vandamál en um leið grundvöll breytinga, ekki bara varðandi íslam og hugarheim þeirra og samfélag múslima á Vesturlöndum heldur einnig ákveðið endurmat á sjálfsmynd “okkar” við þessi kynni. Megin inntak ritgerðarinnar er aðvörun um að eðlisgera ýmsa flokkunarþætti manna á mönnum, svo sem menningu, trú, etnerni, þjóð, o.fl. en slík aðferðafræði hefur oftar en ekki haft mjög neikvæðar afleiðingar. Bent er á að vestrænir múslimar verða æ meiri hluti af “okkar” menningu og samfélagi á sama hátt og vestræn menning er fyrir löngu orðin samofin samfélögum í löndum múslima.