Thursday, May 29, 2008

Helgidagafriður í fjölmenningu

Viðfangsefni ritgerðar Magnúsar M. Norðdahl er helgidagafriðurinn, einokun kristninnar á honum og hugsanleg mannréttindabrot sem þeirri einokun fylgir m.a. hvað varðar bann á starfsemi og ákvörðun kaups vegna vinnu á þeim.

Er tímabært að gera róttækar breytingar hér á til þess að varðveita samfélagsfriðinn og til þess að tryggja að allir séu jafnir fyrir lögunum eða er ástæðulaust að hafa af þessu nokkrar áhyggjur? Magnús skoðar viðfangsefnið út frá gildandi löggjöf og forverum þeirra og þeim alþjóðlegu mannréttindaskuldbindingum sem við erum annað af tvennubundin af skv. lögum eða sem við óhjákvæmilega sveigjum löggjöf okkar eftir. Þó svo að ekki sé nema óbeint fjallað um réttarstöðu múslima hér á landi í þessu sambandi þá á umfjöllunin beint við um stöðu þeirra og allra annarra sem ekki tilheyra þjóðkirkjunni.