Ólöf de Bont vann þessa ritgerð sem lokaverkefni í námskeiðinu Kóraninn: Helgirit Íslam, sem kennt var við guðfræði- og trúarbragðadeild á Hugvísindasviði Háskóla Íslands á vorönn 2011, undir handleiðslu Magnúsar Þorkels Bernharðssonar.
Tilgangur ritgerðarinnar er að varpa ljósi á stöðu stjórnmála innan íslamskra samfélaga í því skyni að sýna að sú hugmynd að trúin og stjórnmál, hjá íslömskum ríkjum, séu einn og sami hluturinn sé meira í orði en á borði og að stjórnvöld veigri sér ekki við að beita trúnni til að viðhalda völdum. Svipuð átök innan kristninnar á 15. og 16. öld gefa til kynna að átökum kunni að linna þegar það framfaraskref verður stigið innan íslam að aðskilnaður trúar og stjórnmála verði viðurkenndur.
Kóraninn og stjórnmál (pdf)
Friday, May 20, 2011
Subscribe to:
Posts (Atom)