Asma Barlas (pdf)
Tuesday, August 9, 2011
Staða og réttindi kvenna í íslamtrú
Staða og réttindi kvenna í íslamstrú hafa á síðustu árum verið áberandi í umræðunni á Vesturlöndum. Táknmynd blæjunar er orðin að ímynd kúgunar og misréttis í garð kvenna. Almennt stendur konan höllum fæti þegar kemur að hjúskaparrétti, erfðarétti og vitnisburði í nafni íslamstrúar. Kóraninn er ekki einungis helgirit múslima heldur er hann grunnur Sharia laga sem eru talin kjarni daglegs lífs í íslamstrú. Mörg ákvæði í þessum lögum hafa haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir konur.Viðfangsefni Hrafndísar Teklu Pétursdóttir eru femínískar rannsóknir á Kóraninum sem hafa leitt í ljós að margt sem er iðkað í nafni íslams, samræmist ekki kenningum hans. Asma Barlas sem Hrafndís Tekla fjallar um í ritgerð sinni er einn þeirra fræðimanna sem gagnrýnir þá hefðbundu túlkun Kóransins sem einkennt hefur karllæga túlkun hans. Einnig gagnrýnir Barlas þá hefðbundu aðferðafræði sem notuð hefur verið við lestur og skilning Kóransins, sem einkennist af því að einstök vers opinberaninna eru túlkuð úr samhengi við önnur vers. Lykilatriði við túlkun Kóransins sé að taka mið af sögu- og menningarlegum áhrifum samfélagsins sem Múhameð bjó í og flettast hafa inn í fræðilega túlkun Kóransins. Rannsóknir Barlas beinast að afstöðu Kóransins til feðraveldisins, sem setur karlmanninn kerfibundið í foréttindarstöðu. Hún kemst að þeirri niðurstöðu að karlmenn njóti engra forréttinda samkvæmt kenningum Kóransins og feli jafnvel í sér róttækt jafnrétti í garð kvenna.
Subscribe to:
Posts (Atom)