Monday, June 3, 2013

Framsæknir straumar

Hugmyndafræðileg endurskoðun eða endurtúlkun Íslams er umfjöllunarefni Brynjólfs Þórs Guðmundssonar sem kannar skrif framsækinna múslima og möguleg áhrif þeirra á líf og umhverfi múslima hvort tveggja í Bandaríkjunum þar sem umræðan er mikil, í það minnsta í fræðaheimum, og víðar um heim, þar sem hefðbundnari/íhaldssamari túlkanir hafa verið meira áberandi.

Meginþema þessarar ritgerðar er að kanna þá hugmyndafræðilegu/trúarlegu endurskoðun sem á sér stað meðal þeirra sem kalla mætti framsækna fræðimenn á sviði Íslams og er þá einkum horft til þróunar sem hefur átt sér stað í Bandaríkjunum á síðustu árum og örfáu áratugum. Meginleikendur í þeirri þróun koma þó víðar að en hafa margir hverjir valið að starfa innan fræðasamfélagsins vestanhafs. Sérstaklega verður horft til þeirra tilrauna sem gerðar hafa verið til að túlka trúna og hugmyndakerfi hennar með frjálslyndari hætti en þeim sem oftast birtist fólki í fréttum og þá jafnvel setja þær tilraunir í samhengi við það umhverfi þar sem þróunin á sér stað.

Rannsóknarspurningin er því: Hverjir eru möguleikar til endurskoðunar og endurnýjunar innan Íslams, með hliðsjón af skrifum framsækinna múslima í Bandaríkjunum? Undir hana falla einnig spurningarnar: Hverjir eru í fararbroddi þeirrar endurskoðunar og endurnýjunar sem á sér stað? og Hversu mikilli útbreiðslu er líklegt að slíkar hugmyndir nái?

Framsæknir straumar (pdf)

Wednesday, May 29, 2013

Er slæðan kúgunartæki stjórnvalda eða frjálst val kvenna?

Í þessari ritgerð veltir María S. Jóhönnudóttir því fyrir sér hvort slæðan sé birtingarmynd kúgunar og ofbeldis kvenna, og/eða hvort samfélagið og/eða ríkisstjórnir þvingi konur til að nota slæðuna. Er  hún frjálst val kvenna? Eða er hún trúarlegt eða menningarlegt fyrirbæri og tengist hún sjálfsmynd múslímskra kvenna?

Það er alveg á hreinu að í upphafi námskeiðsins hafði ég þá skoðun að slæðan jafngilti kúgun kvenna. Almenn þekking mín um trúarbrögð var og er enn fátækleg (þó svo að ég hafi lært mjög mikið í þessu námskeiði um Íslam), að vísu lærum við um Íslam, Búddisma, Kristni og örlítið um Hindúisma í sagnfræðinni en það er frekar yfirborðskennt. Þegar það kom að vali fyrir veturinn 2012 - 2013 og ég sá að það yrði boðið upp á kúrs í Íslam í fortíð, nútíð og framtíð fannst mér tilvalið sækja þá tíma og reyna að auka þekkingu mína um Íslam. Ég þekkti Íslam nákvæmlega ekki neitt, nema það sem ég las í blöðum og sá í öðrum fréttamiðlum. Og það verður að segjast alveg eins og er að fréttir á Íslandi eru yfirleitt alltaf neikvæðar um Íslam og draga fréttastofur á Íslandi mjög taum af bandarískri sýn gagnvart trúarbragðinu. Ég hafði því mjög neikvæða mynd af Íslam. Ég telst frekar hógvær í skoðunum þegar það kemur að trúarbrögðum en ég trúi á umburðalyndi umfram allt þegar það kemur að trúarlífi fólks. Í hvert skipti sem ég horfi á fréttir og það er verið að fjalla um Íslam, kemur alltaf fram neikvætt viðhorf gagnvart trúarbragðinu og í flestum tilfellum kemur orðið hryðjuverkamenn eða árásir fram í sömu setningu og myndefnið sem er sýnt með er mjög neikvætt, því var það augljóst að skoðanir mínar lituðust mjög af því sem ég las og sá í fréttum. En til þess að skoða og reyna að svara þessum spurningum hér að ofan mun ég skoða Sádi Arabíu, Egyptaland og Afganistan, en ég mun einnig fjalla að einhverju leyti um umræðuna sem fór fram í Frakklandi um slæðuna, og þá löggjöf sem var síðan sett á, en hún bannaði konum að ganga með slæður í skólum landsins. En með því að fjalla um þessi ríki get ég vonandi skýrt út skoðun mína og rökstutt hana. Ég geri mér hins vegar alveg grein fyrir að málefni slæðunnar er mun flóknari en svo að hægt sé að svara þessum spurningum vel í svona stuttri ritgerð, en vonandi er horft á viljann fyrir verkið.

Er slæðan kúgunartæki stjórnvalda eða frjálst val kvenna? (pdf)

Monday, May 20, 2013

Saga og uppgangur róttækra hryðjuverkahópa

Kristbjörg Sóley Hauksdóttir birtir í ritgerð sinni yfirlit yfir skrif Fawaz Gerges í bók sinni Ferð íslamista (Journey of the jihadist) þar sem reynt verður að svara eftirfarandi spurningum: „Hvaða lærdóm má draga af umfjöllun Gerges? Hvernig túlkar þú uppgang al-Qaeda og annarra róttækra hreyfinga meðal múslíma? Hvernig ber að útskýra þetta.“

Í fyrsta kafla ritgerðarinnar tala ég um jihad. Það orð er á Vesturlöndum oft þýtt sem heilagt stríð en þessi orð koma hvergi fram saman í Kóraninum og mun ég þess vegna nota orðið jihad í stað hinnar slæmu þýðingar heilagt stríð. Ég ætla að fjalla um í þessari ritgerð fyrirbærið, jihad hvað það í raun merkir og almenna túlkun á því, einnig verður fjallað um hina róttæku túlkun sem íslamistarnir notfæra sér. Í öðrum kafla skoða ég svo ástæðu, markmið og sérstæðu skrifa Gerges. Eftir þann kafla taka við kaflar þrjú og fjögur þar sem ég skoða áhrifamestu íslamistana og reyni að velta upp af hverju þeir urðu eins áhrifamiklir og raun bar vitni og hvernig afstaða þeirra breytist kynslóð fram af kynslóð. Einnig mun ég skoða uppgang al-Qaeda sem eru þekktustu hryðjuverkasamtök heims um þessar mundir og reyna að komast að niðurstöðu af hverju þessi uppgangur verður og hver staða þeirra sé í dag. Í lok ritgerðarinnar eru svo niðurstöðurnar dregnar saman í sérstökum kafla. Þar sem þetta er stutt skólaritgerð mun ég gera mitt besta til að gera þessu yfirgripsmikla og merkilega efni skil innan þeirra marka sem svona stutt ritgerð setur.

Saga og uppgangur róttækra hryðjuverkahópa (pdf)