Friday, May 23, 2014

Hvað segir Kóraninn um Jihad?

Kolbrún Magnea Kristjánsdóttir fjallar um Kóraninn og hvað hann segir um Jihad og skoðar mikilvægi hins félagslega og sagnfræðilega samhengis við túlkun.

Í kjölfar árásanna á Tvíburaturnanna árið 2001 og sprenginganna í London árið 2005 stigu fram á sviðið gömul viðhorf til íslamtrúarinnar. Þetta voru viðhorf sem lengi höfðu verið við lýði en í kjölfar atburðanna var líkt og flóðgátt hefði myndast og út streymdu yfirlýsingar um íslam og múslima. Íslamstrúin var sett fram sem ofstækisfull, vanþróuð og stöðnuð trú af fjölmiðlum, í opinberri orðræðu og í dægurmenningu. Í kjölfarið var sett samasem merki milli þessara skilgreininga og múslima sem hafa sætt miklum fordómum, sér í lagi eftir árið 2001. Skyndilega var um fátt annað talað í fréttum en þá ógn sem steðjaði að vegna íslam og í þessari umfjöllun varð eitt hugtak áberandi. Það var hugtakið jihad eða líkt og það er gjarnan þýtt; heilagt stríð.

Í þessari ritgerð mun ég skoða hugtakið jihad og hvernig það birtist í Kóraninum. Ég byrja á því að fjalla um hvaða merkingu hugtakið hefur fyrir Vesturlandabúa sem hefur svo bein áhrif á hugmyndir fólks um íslam. Fer ég svo yfir hvaða þætti er mikilvægt að hafa í huga við lestur Kóransins. Hér byggi ég á hugmyndum Abdullah Saeed um mismunandi merkingu Kóransins yfir tíma og mikilvægi þess að hafa skilning á félagslegu og sagnfræðilegu samhengi hans. Ég mun fjalla um leiðréttingarversin eða naskh og tengsl þeirra við félagslegar breytingar. Svo fjalla ég hinar ýmsu birtingarmyndir jihad í Kóraninum og birti loks niðurstöður.

Hvað segir Kóraninn um Jihad?