Í þessari ritgerð verður sýnt fram á að Mustafa Kemal Atatürk forseti Tyrklands á árunum 1923-1938 sé róttækasti stjórnmálamaður 20.aldarinnar vegna þeirra miklu þjóðfélagsbreytinga sem hann kom á í Tyrklandi eftir að hafa leitt Tyrki til sjálfstæðis á árunum 1919-1923.
Þessar breytingar og umbylting á þjóðfélagsgerðinni sem hann á frumkvæði að eiga sér engin fordæmi á 20.öldinni.
Hér verður fyrst fjallað um aðdragandann að stofnun lýðveldisins Tyrkland árið 1923 og tilraunum Breta,Ítala, Frakka og Grikkja að ná yfirráðum yfir landsvæði sem nú tilheyrir Tyrklandi. Síðan verður fjallað um endalok kalífadæmis Ottoman heimsveldisins sem var heimsögulegur atburður, valdatöku Kemal´s og þeim breytingum sem hann kom á í Tyrklandi, og að lokum stöðu Tyrklands í dag og þann sess sem Mustafa Kemal Atatürk skipar hjá tyrknesku þjóðinni. Frásögnin mun styðja þá fullyrðingu sem hér hefur verið sett fram um að hann hafi verið róttækasti stjórnmálamaður 20. aldar.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment